Dags: 22.11.2006 16:48
Núna um helgina munu leikmenn úr Reykjavíkurfélögunum, SR og Birninum og sem eru gjaldgengir í landslið Íslands skipað leikmönnum 20 ára og yngri, þjappa sér saman í rútu og halda norður yfir heiðar og í æfingabúðir. Æfingabúðunum stýrir hin landskunni þjálfari Ed Maggiacomo og honum til aðstoðar verður þungavigtarmaðurinn Helgi Páll Þórisson fyrirliði meistaraflokks Skautafélags Reykjavíkur.
Þeir félagar munu sjá um að velja þann hóp leikmann sem fer til Rúmeníu núna í byrjun desember þar sem Íslendingar munu etja kappi við þjóðir einsog Ástrali, Króata, Spánverja, Ungverja og Rúmena. Það er nokk ljóst að á brattann verður að sækja fyrir okkar strákar þar sem þeir fóru upp um deild á síðasta ári. En vonir standa samt til að halda okkur upp í þessari deild fram á næsta ár og jafnvel lengur.
Hægt er að sjá nánar um ferðatilhögun og aðrar upplýsingar um U20 landsliðið á vef ÍHÍ eða með því að smella hér.