Dags: 19.11.2006 23:43

Sagan af SR-liðinu slæma:
Meistaraflokkur SR tók á móti meistaraflokki SA tvisvar um helgina. Fyrri leikurinn var á laugardagskvöldið og allt stefndi í að áhorfendur væru komnir til að horfa á spennandi og skemmtilega viðureign. Raunin varð önnur. SR-ingar, sem voru óagaðir og óundirbúnir, mættu frísku liði SA sem virtust vera komnir til Reykjavíkur til að vinna ! SR-ingar áttu lítil sem engin svör við góðum leik SA manna þar sem þeir náðu að pressa stíft á lið SR sem virtist hafa fá svör. Þrátt fyrir tilþrifa lítil 3 mörk hjá SR náðu SA-menn að skora 6 mörk áður en leikurinn var úti og unnu hann nokkuð sannfærandi.
Sagan af SR-liðinu góða
Í morgun öttu þessi sömu lið kappi.... en bara að nafninu til. Nær AL-íslenskt, og allt annað, SR-lið mætti á ísinn á móti frískum SA-ingum þar sem 3 tékknenskir leikmenn áttu í erfiðleikum með íslenskt veðurfar og komust ekki á leikinn (úr Hafnarfirði) og einn íslenskur varnarmaður ákvað að halda sig heima og var hans sárt saknað. SR-ingar urðu að þjappa sér saman bíta á jaxlinn og spila hokkí. Viti menn.... SR-ingar stigu upp úr tapi gærdagsins og sýndu vel hvað þeir gátu, án erlendrar hjálpar, sem var að spila pekkinum sín á milli og hafa gaman af því. SA-ingar sem héldu að þeir væru að fara í jafn auðveldan leik og daginn áður, áttuðu sig á því að núna væri úr vöndu að ráða því að ekki væru tékkar til að dekka í SR og urðu því að fara dekka ALLA hina í SR....
SR-ingar skautuðu, spiluðu, skutu og skemmtu sér sem aldrei fyrr. SA-ingar áttu oft á tíðum í vanda með að komast í færi, slík var staðfesta SR. Fyrsti leikhluti fór SR: 1 - SA:2. Var það mál mann að SR, þrátt fyrir markatöluna, unnið lotuna. Í annari lotu virtust SR-ingar lenda í vandræðum og lentu heldur ótæpilega í refsiboxinu fyrir að sem virtist fyrir litlar sakir. Á einum tímapunkti voru fleiri í refsiboxinu heldur en á varamannabekknum hjá SR. Eftir lotuna tóku SR-ingar sig til í andlitinu, peppuðu hvern annann upp og fóru í það horf sem var í fyrstu lotu og skautuðu, spiluðu og skutu af hjartans list og unnu lotuna 1 -0. Þrátt fyrir að tapa leiknum 3 - 7 þá voru SR-ingar nokkuð sáttir með leikinn þar sem þeir spiluðu sem eitt lið, sem hefur of-sjaldan gerst á þessu tímabili.
Nú virðist sem nýr andi sé komin í lið SR og vilji til þess að gera breytingar og bætur til að gera alvöru atlögu að sæti í úrslitum og ef til vill að Íslandsmeistara-bikarnum .... sem er, nota bene, staðsettur í Skautahölinni í Laugardal.