Fréttir

Total items: 1194

SR beið lægri hlut

Dags: 16.11.2006 08:48


Í gærkvöldi mætti SR Birninum í Íslandsmóti U20 en leikurinn fór fram í Laugardalnum. SR hefur ekki gengið sem skyldi í þessum flokki og það varð engin breyting á því í gærkvöldi en Björninn vann 7 - 4. Leikurinn var þó jafn og spennandi og bæði lið sýndu skemmtilega takta og gott spil. Lengi vel var staðan 4 - 4 en það var ekki fyrr en langt var liðið á 3. lotu að Björninn seig fram úr og gerði út um leikinn. Það var þó markvarsla Inga í liði Bjarnarins sem gerði gæfumuninn, en þessi fyrrum SR-ingur varði einsog berserkur og sá til þess að pressa SR-inga varð að engu. (frá ÍHÍ) Mörk/stoðsendingar SR:
Þorsteinn Björnsson 3/0
Gauti Þormóðsson 1/1
Steinar Páll Veigarsson 0/4
Brottvísanir SR: 26 min.

Mörk/stoðsendingar Björninn:
Kolbeinn Sveinbjarnarson 2/0
Matthías Skjöldur 1/1
Kópur Guðjónsson 1/1
Ásgeir Atlason 1/0
Hjörtur Geir Björnsson 1/0
Gunnar Guðmundsson 1/0
Einar Sveinn Guðnason 0/1
Andri Steinn Hauksson 0/1
Brottvísanir Björninn: 16 mín.