Dags: 11.11.2006 01:22

Í kvöld mun SR heimsækja SA norður á Akureyri, ef hinir almáttugu veðurguðir
leyfa. Mikil eftirvænting var á meðal leikmanna beggja liða fyrir þennan leik
þar sem hann átti að vera í miðju Brynjumóti með stútfulla skautahöll af kátum
hokkíáhugamönnum, en ekkert verður af Brynjumóti sökum veðurs. Engu að síður
mun meistaraflokkur SR halda í ferð norður í land ef veður leyfir og etja kappi
við þá norðlendinga. Eitthvað hefur borið á digrum yfirlýsingum á heimasíðu SA-manna,
www.sasport.is, og engu líkara en þeir séu komnir með aðra höndina á bikarinn... þó að tímabilið
sé rétt hafið.
SR-ingar eru hvergi smeykir og munu eflaust fara norður þó að verðurspáin sé
óhagstæð... rútan má jafnvel festast, verða bensínlaus og bila.. það mun engu
breyta um það að SR-ingar munu fara norður til að sækja sigur .... og ekkert annað.
Leikurinn hefst í Skautahöllinni á Akureyri kl.19:15.
Áfram SR !!