Dags: 10.11.2006 13:06
Við erum ávallt minnt á það að við búum í landi þar sem veðrið leikur oftar en ekki aðalhlutverkið. Nú hefur verið ákveðið að fresta Brynjumótinu vegna veðurs eða einsog segir á heimasíðu SA: "Því miður verðum við að fresta Brynjumótinu vegna þess að ekki þykir ráðlegt að leggjast í ferðalög með keppendurna að sunnan. Við stefnum á að halda Brynjumótið eftir tvær vikur þ.e. 25. og 26. nóv ef allt gengur upp og verður það tilkynnt nánar síðar". Nú verðum við bara að vona að veðrið leiki við okkur þá helgi.