Dags: 09.11.2006 19:47
Um næstu helgi verður Brynjumótið haldið í þrettánda skipti. Er þetta einn á hápunktum vetrarins hjá mörgum upprennandi hokkístjörnum. Einsog undanfarin á hefst mótið á laugardegi og verður spilað hokkí frá snemma að morgni fram eftir kvöldi. Ein breyting hefur verið á í ár, frá því í fyrra, að núna verður einn leikur í Meistaraflokki spilaður í miðju Brynjumóti. Verður það hörkuviðureign á milli SA og SR. Von er til þess að sem flestir leggji leið sína í Skautahöllina á Akureyri og fylgjist ekki síst með þeim yngri heldur doki lengur við og horfa á stórkostlegt íshokkí á milli þessara tveggja íshokkístórvelda. Leikurinn hefst á laugardaginn kl.19:15 og ekki missa af því !!
Áfram SR !!