Dags: 09.11.2006 17:37
Í gærkvöldi mætti SR liði Bjarnarins í Íslandsmóti karla en þessi leikur fór
fram í Laugardalnum. Jafnræði var með liðunum frá fyrstu mínútu, þar sem liðin
skiptust á að skora. SR komst í 2-0 og síðan í 3-2 en þá gerði Björninn tvö mörk
í röð og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum. SR náðu þó fljótt aftur forystunni
og juku síðan við hana en leikurinn endaði 7-4 fyrir SR.
Mikið var um brottrekstra í leiknum sem kannski stafaði af því að leikmenn virtust
ekki gera sér grein fyrir því að nú, skv. nýrri túlkun IIHF, er mun stífara tekið
á ákveðnum brotum en fyrr (sjá http://www.ihi.is/?i=2&a=read_artical&id=1180). En leikmenn koma til með að læra þetta og venjast þessum breytingum smátt
og smátt. Annars var leikurinn nokkuð skemmtilegur og undirstrikaði um leið að
þetta tímabil verður mjög spennandi í Meistaraflokki.
(af heimasíðu ÍHÍ)
Mörk/stoðsendingar SR:
Petr Krivanek 3/2
Daniel Kolar 1/3
Gauti Þormóðsson 1/2
Mirek Krivanek 1/2
Helgi Páll Þórisson 1
Brottvísanir: 45 mín.
Mörk/stoðsendingar Björninn:
Hjörtur Geir Björnsson 2/0
Marcin Diacow 1/0
Hrólfur M Gíslasson 1/0
Birgir J. Hansen 0/2
Daði Ö. Heimisson 0/1
Sergei Zak 0/1
Matthías S Sigurðsson 0/1
Brottvísanir: 38 mín