Fréttir

Total items: 1194

Grannaslagur í kvöld kl.20:30 !!

Dags: 08.11.2006 00:01


img_0096.jpg

Í kvöld munu núverandi Íslandsmeistarar SR taka á móti firnasterku liði Bjarnarins. Björninn spilaði um síðustu helgi við SA norður á Akureyri en þeim leik lyktaði með sigri  SA eftir spennandi og skemmtilegan leik þar sem úrslitin réðust í síðasta leikhlutanum. Björninn er greinilega staðráðin í því að láta þann leik ekki endurtaka sig og ætla þeir að taka vel á því í leik kvöldsins. SR-ingar hafa átt góðu gengi að fagna þrátt fyrri dapra byrjun á tímabilinu. Ed Maggicomo, aðalþjálfari liðsins, hefur breytt æfingum meistarflokks og 2.flokks og æfa þessir flokkar nú saman. Einhverjar línubreytingar hafa verið gerðar og kemur í ljós hvernig þær breytingar koma til með að ganga á móti Birninum.

Leikurinn hefst stundvíslega kl.20:30 í Skautahöllinni í Laugardal og eru allir SR-ingar hvattir til að mæta á svæðið og hverja sitt lið áfram til sigurs.

Áfram SR !!