Dags: 07.11.2006 11:01
Þónokkuð af hokkíleikjum voru spilaðir um helgina. SA menn voru nokkuð sigursælir í sínum leikjum gegn Birninum. Fyrst mættu þeir Meistaraflokki Bjarnarins í spennandi leik þar sem allt var í járnum fram í síðasta leikhluta. Liðinn skiptust á að sækja og voru alls 13 mörk skoruð í leiknum. Leikurinn fór nokkuð prúðmannlega fram og engin stóratvik áttu sér stað á þeim vettvangi. Hægt er að nálgast nánari lýsingar á leiknum á heima síðu SA www.sasport.is.
Síðar sama kvöld áttust við SA og Björninn í Kvennaflokki og skemmst er frá því að segja að Bjarnarstelpur sá lítið til sólar í þeim leik þar sem þær virtust þreyttar og undirmannaðar. Eitthvað vantaði uppá mannskapinn hjá þeim á meðan SA hefur greinilega vaxið ásmeginn og fengið góðan liðsstyrk af henni Söru Smiley. Leikurinn endaði með yfirburðasigri SA 7 - 2.
Næsti leikur hjá SR verður á morgun kl.20:30 en þá mætast SR og Björninn í Meistaraflokki.