Dags: 02.11.2006 17:37
Bjarnarmenn komu sterkir til leiks í Laugardalinn í gærkvöld þegar þeir öttu kappi við heimamenn SR-inga. Ekki var betur séð en að SR-ingar virtust vera þreyttir, óagaðir og ósamstilltir í leik sínum í gærkvöldi. Björninn var hinsvegar fljótari til í alla pekki og voru harðari af sér í alla staði. Oft á tíðum voru um klaufa mistök hjá SR-ingium að ræða sem Bjarnarmenn náðu að nýta sér í hvert skipti. Eitthvað verður Ed "Armbeygja" Maggiacomo að setjast niður og teikna upp nýjar aðferðir við að spila á móti sterku liði Bjarnarins því að ekki verður róðurinn auðveldari þegar lengra inní tímabilið er komið. SR-ingar áttu sína góðu spretti í leiknum en markmaður Bjarnarins, Ingi Þór (sem er með SR-framleiðslustimpil á sér), passaði uppá að sínir gömlu félagar næðu ekki að skora úr þeim mörgu færum sem þeir fengu eftir mikla baráttu. Tölulegar upplýsingar liggja ekki alveg fyrir en þær eru væntanlegar hér á vefinn innan skamms.
Eitthvað var brottvísunum var í þessum leik einsog gengur en þó furðu fáar miðað við að nú séu komnar nýjar reglur og nýjar áherslur inn í leikinn. Hvort lið um sig fékk um og yfir 10 bottvísanir.