Dags: 26.10.2006 21:57
3.flokkur SR tók á móti 3.flokki Bjarnarins í Skautahöllinni í Laugardal í gær. Skemmst er frá því að segja að SR fór með sigur af hólmi 7 - 1. Þessi leikur var einn af þeim fyrstu sem voru spilaðir eftir nýjum áherslum í dómgæslu þar sem harðar er tekið á að krækja, halda, fella eða slá andstæðing. Eitthvað hafði þetta áhrif á leik strákanna þar sem refsimínútur voru fleiri en þekkst hefur í þessum aldursflokki. Jón Ragnar aðaldómari leiksins var óragur við að setja menn í boxið fyrir að beita kylfunni heldur ótæpilega og stundum fengu menn auka 10 mínútur í boxinu fyrir kjaftbrúk við dómara eftir að dómur var kveðinn. En þetta eru allt ungir strákar sem voru fljótir að læra að það þýddi ekkert að deila við dómarann. Gaman verður að sjá hvernig þessi lið, í þessum aldursflokki, takast á í næstu leikjum þar sem bæði lið hafa frambærilega leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér í íþróttinni.