Fréttir

Total items: 1194

Góður laugardagur hjá SR

Dags: 24.10.2006 08:34


SR-ingar gerðu Akureyringum í SA góð skil sl. laugardagskvöld. Fyrst mættust karlalið þessara liða en þetta var fyrsti innbyrðisleikur þessara liða á þessum vetri. SR-ingar mættu ákveðnir til leiks og unnu öruggan sigur, 5 - 2, eftir að hafa leitt eftir fyrstu lotu 4 - 1. Sigur þeirra var sannfærandi enda þótt ekki hafi þeim tekist að auka forskotið í annarri og þriðju lotu. Leikur liðsins var oft á tíðum mjög hraður, sérstaklega í fyrstu lotu en er á leið leikinn hægðu þeir á ferðinni og gerðust frekar kærulausir. Ekki tókst SA að nýta sér það svo leikurinn var allan tímann í öruggum höndum SR. Leikurinn var prúðmannlega leikinn, einsog oftast er rauninn er þessi tvö lið mætast, og lofar góðu fyrir framhaldið, Þetta var þriðji sigur SR í röð eftir að hafa tapað fyrsta leiknum á tímabilinu. Það er ljóst að þetta Íslandsmót verður mjög spennandi og ómögulegt að spá fyrir um framhaldið á þessari stundu. Björninn hefur mætt vel æfður til leiks, kominn með nýjan þjálfara sem eflaust á eftir að koma með nýjar áherslur í leik sinna manna, og víst er að SA á mikið inni, enda hafa þeir endurheimt góða leikmenn og mikla reynslubolta. Eins verður að telja að SR geti bætt sig ennfrekar, sérstaklega þegar ungu leikmennirnir fá fleiri tækifæri.   Þá mættust 3. flokkur þessara liða en SR hafði unnið fyrsta leik sinn í Íslandsmótinu, 4 -1 gegn Birninum. Strákarnir í SR mættu mjög ákveðnir til leiks og unnu öruggann og sannfærandi sigur, 10 - 3. Glæsileg byrjun hjá þeim á Íslandsmótinu.