Fréttir

Total items: 1194

SR tekur má móti SA á Laugardagskvöld kl.19:00

Dags: 20.10.2006 00:17


sr_sa_08_10_2005_2.jpg

Á laugardagskvöldið mun SR taka á móti SA í Laugardalnum.  Mikil eftirvænting er fyrir þennan leik þar sem þetta verður fyrsta skipti í vetur sem þessi lið mætast.  SR hefur gengið ágætlega og unnið 2 af sínum 3 leikjum.  SA menn unnu Björninn í sínum fyrsta leik en Björninn hefur náð að jafna metinn og sigraði SA sannfærandi um síðustu helgi 6-3.  SR-ingar hafa haft heillagyðjuna meðferðist í síðustu tveim leikjum gegn Birninum og unnið þá með miklu harðfylgi og spilamennsku. Allir áhugamenn um íshokkí eru hvattir til að mæta á svæðið og fylgjast með þessari skemmtilegu viðureign.  Leikurinn hefst kl.19:00.  Strax á eftir munu 3.flokkar þessara liða mætast.   Áfram SR !!