Fréttir

Total items: 1194

SR lagði Björninn í Egilshöllinni

Dags: 18.10.2006 02:39


Í gærkvöldi mættust Björn og SR í Íslandsmóti karla en þessi leikur fór fram í Egilshöll. SR-ingar fóru með sigur af hólmi, 7 - 4, í leik sem einkenndist of mikið af brottvísunum. SR hefur nú unnið Björninn í tvígang en þeir töpuð fyrsta leik sínum gegn Birninum. Um næstu helgi mæta SR-ingar svo Akureyringum í fyrsta sinn á þessu tímabili. Nánar seinna.   Mörk/stoðsendingar SR:

Daniel Kolar 3/1
Gauti Þormóðsson 2/0
Mirek Krivanek 1/3
Todd Simpson 1/2.
Mörk/stoðsendingar Bjarnarins: Daði Örn Heimisson 1/1
Sergei Zak 1/1
Brynjar Freyr Þórðarson 1/1
Hjörtur Geir Björnsson 1/0
Kolbeinn Sveinbjarnarson 0/1