Dags: 13.10.2006 12:50
Þá er loksins komið að hinum GEYSIVINSÆLA skiptimarkaði hokkídeildar SR en undanfarin ár hafa blómleg viðskipti farið þar fram ´allskonar íshokkívörum - kaup og sala á notuðum búnaði. Markaðurinn að þessu sinni verður sunnudaginn 22. október kl. 10:30 - 12:00 í Skautahöllinni í Laugardal, í aðstöðu félagsins fyrir ofan stúku. Svo má minnast á það að óðum styttist í árshátíð íshokkídeildar SR en hún verður laugardaginn 28. október. Nánar um það síðar en fylgjist með.