Dags: 12.10.2006 00:48
Það er óhætt að segja að fyrsti heimaleikur SR hafi lofað góðu fyrir framhaldið
í vetur en SR mætti Birninum á miðvikudagskvöldið í Íslandsmóti karla. SR-ingar
mættu til leiks með ungt en reynslumikið lið auk þess að kynna til leiks nýjann
varnarmann, Daniel Kolar frá Tékklandi. Björninn kynnti hins vegar til leiks nýjan
þjálfara sinn, Jukka Iso-Antilla frá Finnlandi. Strax frá fyrstu mínútu tóku SR-ingar
öll völd á ísnum og náðu fljótt 5-1 forystu áður en fyrsta lota var liðinn. Í
annarri lotu héldu SR-ingar uppteknum hætti og komust í 8-1 áður en Björninn náði
að bæta öðru marki sínu fyrir lok lotunnar. Eitthvað hafa SR-ingar verið orðnir
værukærir með stöðuna því í þriðju lotu mætti Björninn til leiks fullur ákafa
og krafti á meðan strákarnir í SR voru frekar annars hugar. Hægt og bítandi tókst
Birninum að saxa á forystuna án þess þó að sigur SR væri nokkurn tíma í hættu.
Leikinn vann svo SR 9-7. (5-1) (2-1) (2-5)
Leikur SR var oft á tíðum mjög góður í fyrstu og annarri lotu, hratt spil, góðar
sendingar og varnarleikur til fyrirmyndar. Tilkoma Daniels Kolar styrkir liðið
óneitanlega en hann átti góðan leik. Annars stóðu allir leikmenn SR sig vel en
þar fór fremstur í flokki Úlfar og Kári sem voru mjög öruggir. Þá var endurkoma
Þórhalls í vörnina eftir meiðsli mikill styrkur fyrir liðið. Björninn átti daufar tvær lotur en í þeirri þriðju sýndu þeir klærnar og þar
fór fremstur í flokki Sergei sem var mjög kröftugur.
Byrjun Íslandsmótsins lofar góðu og fyrirsjáanlegt að allir leikir verða spennandi því liðin þrjú virðast vera óvenjujöfn að getu, svona fyrirfram.
Mörk/stoðsendingar SR (af heimasíðu ÍHÍ):
Kári Valsson 1/1
Steinar Páll Veigarsson 0/2
Gauti Þormóðsson 0/1
Mirek Krivanek 2/1
Guðmundur Björgvinsson 0/1
Úlfar Jón Andrésson 2/1
Þorsteinn Björnsson 0/2
Todd Simpson 1/0
Daniel Kolar 2/0
Þórhallur Viðarsson 1/0
Brottvísanir SR: 45 mín.
Mörk/stoðsendingar Björninn:
Hjörtur Geir Björnsson 1/0
Guðmundur Borgar Ingólfsson 0/1
Birgir Jakob Hansen 1/0
Trausti Bergmann 1/0
Daði Örn Heimisson 0/1
Vilhelm Már Bjarnason 0/1
Sergei Zak 2/0
Gunnar Guðmundsson 0/2
Brynjar Freyr Þórðarson 1/0
Matthías Skjöldur Sigurðsson 1/0