Dags: 10.10.2006 18:23
N.k. miðvikudagskvöld kl. 19:45 tekur SR á móti Birninum í Íslandsmóti karla en þetta er önnur innbyrðisviðureign þessara liða á þessu tímabili. Björninn vann fyrsta leikinn 6 - 3 og nú er komið að SR-ingum að sýna hvað í þeim býr. Við minnum stuðningsfólk á að mæta tímanlega á leikinn svo að þeir lendi ekki í umferðaröngþveiti er landsleik Íslands og Svíþjóðar lýkur en sá leikur hefst kl. 18:05 og lýkur um 20:00.