Dags: 10.10.2006 14:58
20.október næstkomandi verður Aðaldómara og línudómaranámskeið í
Skautahöllinni í Laugardal. Allir þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér dómgæslu í íshokkí eru hvattir til að mæta á svæiðið og taka
námskeiðið. Allir þeir sem hafa tekið dómaranámskeið áður eru hvattir
til að mæta til að kynna sér nýjar áherslur í
dómgæslunni.Alþjóðasambandið hefur gefið út nýjar áherslur á
skilgreiningu á að halda andstæðin, krækja eða að fella
andstæðing. Þessar nýju áherslur eru gerðar til að gera leikinn
opnari og meira spennandi. Þessar nýju áherslur hafa verið kyntar
sérstaklega til formanna félaganna. Eftir námskeiðið mun vera tekið
létt próf sem veitir mönnum réttindi til að dæma í Íslandsmótinu í
íshokkí á Íslandi.
Þátttakendum er gert að lesa yfir
reglurnar áður en komið er á námskeiðið svo að þeir séu betur
undirbúnir. Hægt er að nálgast reglubókina á vef ÍHÍ, www.ihi.is. Allar aðrar upplýsingar er hægt að nálgast hjá Dómaranefnd ÍHÍ.