Fréttir

Total items: 1194

SR U20 með góðan sigur

Dags: 05.10.2006 17:24


Á þriðjudagskvöldið mætti SR-ingar Birninum í Íslandsmóti U20 en leikurinn fór fram í Egilshöllinni. Liðin höfðu einu sinni áður mæst í mótinu í haust en þá vann Björninn afspyrnuslaka SR-inga. Greinilegt var að strákarnir í SR ætluðu ekki að endurtaka þann leik því þeir mættu mjög ákveðnir til leiks og sigruðu örugglega, 9-5. Leikur SR var oft á tíðum frábær, mjög góðar sendingar hjá leikmönnum, hraður leikur og mikil barátta. Allar línurnar virkuðu vel og gaman var að sjá samvinnu þeirra bræðra, Egils og Gauta, og Þorsteins en þeir léku saman á línu. Annars var þetta sannarlega sigur liðsheildarinnar. Mörk SR (með fyrirvara): Þorsteinn 3, Úlfar 3, Steinar Páll 2 og Gauti 1.