Fréttir

Total items: 1194

Fyrsti leikur vetrarins

Dags: 13.09.2006 12:42


Í kvöld kl. 19:15 fer fram fyrsti leikurinn í Íslandsmóti 2. flokks er SR-ingar mæta Birninum í Laugardalnum. Miklar breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi leikja í 2. flokki en nú geta leikmenn sem eru 19 ára og yngi (fæddir 1987 eða síðar) tekið þátt í mótinu. Ennfremur verður leikjum í mótinu fjölgað til muna. Þetta er breyting til batnaðar því nú fá leikmenn sem bíða eftir að geta spilað með meistaraflokki, tækifæri á að öðlast enn meiri reynslu. Um leið er þetta mikilvægt fyrir allt landsliðsstarf U18 og U20 liðanna sem ætti að eflast fyrir bragðið.