Dags: 12.09.2006 19:30

Ungmennafélagið Narfi nær ekki að tefla fram liði í Íslandsmeistaramóti karla í íshokkí þetta tímabil. Verður þetta að teljast hvimleitt þar sem koma Narfa inní deildina jók fjölbreyttni leikja og skemmtun. Forsvarsmenn Narfa telja um árslanga hvíld sé að ræða og að þeir mæti á næsta tímabili með þéttsetið lið af mönnum sem verða, að vanda, bognir af reynslu og leikgleði. Mótanefnd ÍHÍ hefur fengið það stóra verkefni að endurraða öllu Íslandsmóti karla og koma með nýtt leikjaplan sem á að spanna 10 umferðir, ef kostur er. Öllum leikjum í Meistaraflokki verður því frestað þar til að Mótanefnd ÍHÍ er búin að skila af sér nýju plani. Hægt er að sjá nánar þessa tilkynningu á ÍHÍ -> hér.