Fréttir

Total items: 1194

Fyrstu leikir vetrarins á næsta leiti.

Dags: 04.09.2006 15:05


sr_bj_13_10_2005.jpg

Þar sem leikjadagskráinn er farinn að taka á sig mynd er ekki seinna vænna en að kíkja á hvað er framundan í mánuðinum.  Fyrsti leikur félagsins verður í 2.flokki þann 13. sept. við Björninn.  Verður þetta án efa spennandi leikur þar sem keppt er eftir nýju fyrirkomulagi. Leikir í þessum aldrusflokki hafa oftar en ekki verið meira spennandi heldur en Meistaraflokksleikir þar sem bæði þessi lið tefla fram sprækum og góðum leikmönnum.  Hefst leikurinn kl.19:15 og verður í Skautahöllinni í Laugardal.

Fyrsti leikur Meistaraflokksins verður við Narfa norður á Akureyri þann 16.september.  Ekki er komin nákvæm tímasetning á þennan leik en ekki er orðið alveg ljóst hvort að Narfi nái að tefla fram liði í vetur.  Mun það allt koma í ljós bráðlega.