Fréttir

Total items: 1194

Skautahöllinni breytt í bílaverkstæði

Dags: 08.08.2006 20:20


img_9871.jpg

Í sumar kynnti DaimlerChrysler hér á landi nýjan lúxusjeppa, Mercedes Benz GL - línuna. Boðið var til landins 350 blaðamönnum hvaðanæva úr heiminum til kynningar og reynsluaksturs á bílnum. Alls voru 70 bílar sérstaklega fluttir inn til landsins fyrir kynninguna. Þá var Skautahöllin tekin á leigu undir þjónustu- og viðgerðarverkstæði fyrir þessa bíla, þar sem blaðamennirnir komu í nokkurum hópum og þurfti að þrífa bílana hátt og lágt auk þess sem ýmislegt kom upp á, í reynsluakstri blaðamannana, auk þess sem bílanir þurftu að líta út eins og nýir fyrir hvern hóp. Þá var hver og einn bíll sérstaklega yfirfarinn jafnt utan sem innan og vel fylgst með af tæknimönnum Benz. Þessi kynning stóð yfir í tæpan mánuð og eru myndirnar teknar í Skautahöllinni þegar hún stóð yfir. Það er greinilega hvergi til sparað þegar Benz kynnir lúxusbíla sína, en áætlað er að kynningin hér á landi hafi kostað á bilinu 350-400 milljónir króna.