Fréttir

Total items: 1194

Úrslitaleikurinn í kvöld

Dags: 29.04.2006 11:10


Þeir voru ánægður stuðningsmenn íslenska landsliðsins í íshokkí er troðfylltu skautahöllina í Laugardalnum í gærkvöldi, er þeir sáu Íslendinga kjöldraga Tyrki í einum allra besta íshokkíleik sem við höfum séð til íslensks landsliðs á heimavelli. Lokastaðan 9 - 0 og Ísland um leið sigurvegari Heimsmeistaramóts 3. deildar. Þetta þýðir að Ísland, ásamt reyndar Tyrkjum sem höfnuðu í öðru sæti, leika að nýju í 2. deildinni að ári - þar sem þeir eiga sannarlega heima. Armenar höfnuðu naumlega í þriðja sæti, einu stigi á eftir Tyrkjum.

Á annað þúsund áhorfendur studdu dyggilega við bakið á íslenska liðinu sem brást ekki væntingum og sýndi frábæran leik og bauð upp á stórkostlega skemmtun. Tyrkir komu ákveðnir til leiks en það voru íslensku strákarnir líka, og með með þennan vilja og baráttuanda var fljótlega ljóst hvort liðið færi með sigur af hólmi. Það tók þó Ísland um 15 mín að skora fyrsta marki en það kom er Jónas Breki náði frákasti og afgreiddi pökkinn í netið hjá illa staðsettum markmanni. Ekki urðu mörkin fleiri í fyrstu lotu. Í annarri lotu mættu Íslendingar enn ákveðnari til leiks og eftir aðeins 3 mín skoraði  Brynjari Þórðarsyni annað mark Íslendinga. Jónas Breki skoraði svo aftur skömmu seinna, og nú úr vítaskoti en áður hafði hann verið troðinn niður í hraðaupphlaupi. Í kjölfarið kom svo mark frá Jóni Inga Hallgrímssyni - í sinni fyrstu skiptingu í leiknum - og síðan var Brynjar aftur á ferðinni með eitt mark. Þegar hér var komið sögu stóð ekki steinn yfir steini hjá Tyrkjum, algert ráðaleysi í spili þeirra og ákveðin þreyta farin að gera vart við sig. Stefán Hrafnsson bætti öðru marki við fyrir Ísland og Jón Ingi bætti svo enn betur nýtingu sína með síðasta marki annarrar lotu. Staðan því 7 - 0 fyrir Ísland. Þriðja lota bauð ekki upp á eins gott íshokkí og sú önnur þar sem Tyrkir voru orðnir mjög pirraðir á sinni frammistöðu og hver leikmaðurinn á fætur öðrum fór í skammarkrókinn. Sérstaklega var þeirra besti maður, Ciplak, ósáttur við leikinn en hann lenti sífellt í útistöðum við m.a. Emil Alengard sem endaði með því að báðir voru reknir úr leiknum. Ísland hélt þó áfram sínu striki og bætti við tveimur mörkum áður en leikurinn var úti, fyrst frá Úlfari Andréssyni og siðan frá Ingvar Jónssyni, en mark hans var sérlega gott, hnitmiðað langskot, sem kórónaði frammistöðu hans á mótinu. Lokastaðan því 9 - 0 fyrir Ísland.

Það er í raun ósanngjarnt að hrósa einum leikmanni Íslands umfram öðrum en hjá því verður ekki komist þó að hrósa annarri línu Íslendinga, með þá Brynjar, Jónas Breka, sem kosinn var maður leiksins, og Daða. Segja má að hinn fasti leikur þeirra og stífa pressa hafi lagt grunninn að stórsigri Íslendinga. Þeir létu Tyrkina aldrei í friði og hreinlega slitu þeim út. Tyrkir hafa litla breidd, en nokkra mjög góða leikmenn, og þessi barátta var þeim ofviða. Síðan má nefna að vörnin var óaðfinnanleg, vel staðsett, einbeitt og mun betri sendingar út úr varnarsvæði en áður í mótinu. Öll varnarpörin voru sterk og örugg. Þá má ekki gleyma markvörslunni hjá þeim Birgi Erni og Gunnlaugi, sem tók þriðju lotuna, sem var mjög góð en oft þurftu þeir að verja erfið skot. T.d. þurfti Gunnlaugur að verja hraðaupphlaup í stöðunni 9 - 0, en það gerði hann glæsilega og sá til þess að Ísland héldi hreinu. En umfram allt var þetta leikur liðsheildarinnar, mikill hraði og stórkostlegt spil og barátta. Kannski hefur á stundum vantað eitthvað uppá spilið og hraðann fyrr í mótinu en það má skrifa á aðstæður; sumir mótherjar buðu ekki upp á annað. Þetta er landslið sem við getum verið stolt af. Við þökkum frábæra skemmtun og til hamingju með árangurinn strákar!

Að lokum þetta: það hefur verið ótrúleg upplifun að fylgjast með þeim mikla fjölda sem mætt hefur í höllina og þeim góða stuðningi sem áhorfendur hafa sýnt íslenska landsliðinu. Þarna var saman komið fólk á öllum aldri, gamlir íshokkínaglar, leikmenn og iðkendur, og nýtt áhugafólk sem nánast hafa ekki séð íþróttina fyrr. Það var augljóst á þessu nýja stuðningsliði að íþróttin höfðaði vel til þeirra, og þeir kunnu vel að meta hraðann, spennuna og andrúmsloftið sem íshokkíið hefur upp á að bjóða. Þetta er ánægjuleg þróun sem er gott veganesti fyrir samhenta framtíð.

.