Fréttir

Total items: 1194

Ísland með léttan sigur á Írum

Dags: 27.04.2006 08:48


Íslendingar mættu Írum í gærkvöldi í sínum öðrum leik á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Laugardalnum. Írar höfðu tapað óvænt fyrir Armenum í sínum fyrsta leik, 6 - 0, þannig að flestir hafa sjálfsagt búist við ójöfnum leik. Írar sýndu hins vegar ágætisbaráttu og með góðum skipulagi og umfram allt góðri markvörslu tókst þeim að halda markinu hreinu í fyrstu lotu, þrátt fyrir stöðuga pressu Íslendinga. Það hjálpaði Írum í fyrstu lotu að íslensku leikmennirnir náðu engan veginn að sýna þann leik sem við sáum í fyrsta leik þeirra; sendingar voru slakari og minni kraftur í návígum. Þetta átti þó eftir að breytast því í annarri lotu tók við mun betra spil og meiri einbeiting sem skilaði sér í þremur mörkum. Í þriðju lotu héldu Íslendingar uppteknum hætti og yfirspiluðu Íra á löngum köflum og bættu við 5 mörkum. Lokastaðan því 8-0 fyrir Ísland.

Leikur Íslands í heildina var mjög góður en sérstaklega er vert að minnast á frammistöðu Ingvars fyrirliða og Emils Alengards. Ingvar var ótrúlega öruggur og yfirvegaður í öllu sínu spili, og á línu með Þórhalli, sem átti frábæran leik, var þessi varnarlína bæði góð til baka og mjög sókndjörf. Loksins sáum við einhverja ógn frá bláu línunni sem vantaði tilfinnanlega í fyrsta leiknum, og fór Þórhallur þar fremstur í flokki með hverju slegguskotinu á fætur öðru. Leikur Emils var síðan eftirminnilegur en hann átti þátt í öllum mörkum liðsins, með eitt mark og 7 stoðsendingar! Hæfileikar hans eru óumdeilanlegir, góður skautari, sterkur og með fína kylfutækni og mikla útsjónarsemi í sendingum. Það verður gaman að fylgjast með þessum leikmanni í framtíðinni. En hann var ekki einn á línu því með honum var Gauti, sem féll mjög vel inn í spilið með Emil, og svo Rúnar, sem skoraði 3 mörk og lék við hvern sinn fingur í samstarfi við Emil og Gauta. Annars áttu flestir leikmenn íslenska liðsins góðan dag. T.d. átti Jónas Breki góðan dag, sífellt ógnandi en var óheppinn með skot sín og brottrekstra. Þá var Birgir markvörður öruggur í markinu, fá skot en erfið sem hann þurfti að taka, á milli þess sem hann þurfti að "bíða" eftir næstu sókn.

Írar sáu vart til sólar í þessum leik, ef undan er skilinn fyrsta lota þar sem barátta þeirra var í algleyming. Þannig áttu þeir aðeins 9 skot að marki á meðan Íslendingar áttu 53 skot.

Mörk og stoðsendingar (af vef ÍHÍ): Rúnar 3/2, Emil 1/7, Gauti 1/2, Ingvar 1/2, Þórhallur 1/1, PAtrik 1/0 og Jónas Breki 0/1.