Fréttir

Total items: 1194

Tyrkir leggja Luxemburg

Dags: 27.04.2006 07:48


Í gær mættust Tyrkir og Luxemburg í Laugardalnum en búast mátti við jöfnum og spennandi leik. En það fór á annan veg því Tyrkir sigruðu Lúxemburgara auðveldlega, 8 - 3. Markvörður Lúxemburg, sem átti stórleik gegn Íslendingum kvöldið áður, stóð fyrir sínu en Tyrkirnir voru einfadlega mun sterkari. Sérstaklega var sóknarmaður þeirra, Ziplak, hættulegur og er ljóst að Tyrkir geta bitið frá sér með hann innanborðs. Íslendingar munu mæta Tyrkjum á laugardaginn og það verður áreiðanlega skemmtilegur og spennandi leikur.