Fréttir

Total items: 1194

Tyrkir lögðu Armena

Dags: 25.04.2006 08:10


Fyrsti leikur HM fór fram kl. 16:00 í gær er Tyrkir mættu Armenum. Fyrirfram var búist við að þetta yrði auðveldur sigur Tyrkja því síðast er Armenar léku á HM hér á landi fyrir tveimur árum töpuðu þeir mjög stórt flestum sínum leikjum, og þ.á.m. 28-0 fyrir Íslandi. Mikill byrjendabragur var þá á liðinu. En mikið hefur áunnist hjá Armenum síðan þá því þeir stóðu í Tyrkjum lengst af en máttu þó sætta sig við 8-3 tap. Leikurinn var spennuþrunginn allan tímann og augljóst að þessar tvær þjóðir, sem eiga langa sögu óvildar að baki sem tengjast landamæradeilum og ólíkri menningarsögu, vildu alls ekki tapa þessum leik. Leikurinn var því mjög harður og andrúmslotið lævi blandið. En leikmenn héldu þó haus mest allan tímann og léku íshokkí.