Fréttir

Total items: 1194

SR Íslandsmeistarari í 3. flokki 2006

Dags: 15.04.2006 22:43


3fl_2006.jpg

Strákarnir í 3. flokki SR gerðu sér lítið fyrir og unnu Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki eftir hörkukeppni við Björninn og SA. Leikir þessara liða í vetur hafa verið mjög spennandi og skemmtilegir, enda allt velspilandi lið með skemmtilega einstaklinga innanborðs. Myndin var tekin er strákarnir fengu bikarinn afhentan í leikhléi í úrslitaleiknum í karlaflokki milli SR og SA. Liðstjóri liðsins og prímusmótor er Guðlaugur Níelsson.