Dags: 11.04.2006 22:08

Um síðustu helgi fór fram í skautahöllinni í Laugardal mót yngri flokka í íshokkí en þátt tóku 5. - 7. flokkur frá SR, SA og Birninum. Að venju fór mótið vel fram, framfarir og áhuginn greinilega mikill í þessum flokkum enda skemmtu leikmenn sér vel. Þarna mátti sjá góð tilþrif og marga framtíðarleikmenn, sumir sem eiga sjálfsagt eftir að halda merkjum félaganna á lofti í meistaraflokki, svona kringum 2015 til 2020.