Fréttir

Total items: 1194

Íþróttafréttir Morgunblaðsins

Dags: 04.04.2006 12:42


Það gerist svo sem ekki oft að dagblöð landsins fjalli um íshokkí en í þau fáu skipti sem það gerist ætti að vera hægt að gera þá kröfu að rétt sé farið með einfaldar staðreyndir, einsog t.d. hver sigraði hvern! Í Morgunblaðinu í morgun birtist á íþróttasíðunni ótrúleg "frétt" um sigur SA á SR í fyrsta leik úrslitakeppninnar, og með fylgir lýsing á gangi leiksins lotu fyrir lotu! Þetta er kostuleg blaðamennska og á kannski meira skylt við blaðamennsku sem við sjáum hjá götublöðum sem eru lítt vönd að virðingu sinni. Um leið og við fögnum viðleitni Morgunblaðsins til að fjalla um íshokkí verðum við að gera þá kröfu að skáldskapurinn sé hafður heima - a.m.k. af virðingu fyrir þeim sem áhuga hafa á þessari íþrótt. Við eigum líka að geta gert þá kröfu til Morgunblaðsins að það biðjist afsökunar á þessum mistökum (!). Á mbl.is má svo lesa eftirfarandi frétt á sama tíma:

"Skallagrímur í Borgarnesi knúði fram oddaleik gegn Íslandsmeisturum Keflavíkur í Borgarnesi í kvöld með níu stiga sigri, 94:85. Leikmenn Skallagríms tóku öll völd á leikvellinum í síðasta leikhluta, gerðu 22 stig gegn aðeins átta frá Íslandsmeisturunum, en sóknarleikur þeirra var í molum. Oddaleikur liðanna verður í íþróttahúsinu í Keflavík á fimmtudagskvöld".

Spurningin er þessi: Var það Skallagrímur sem sigraði eða öfugt, eða fór þessi leikur yfirhöfuð fram?