Fréttir

Total items: 1194

SR byrjar vel

Dags: 03.04.2006 23:57


urslit_sr_sa_03042006.jpg

Í gærkvöldi mættu SR-ingar norðanmönnum í SA í fyrsta úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn, en þessi leikur fór fram í Laugardalnum að viðstöddum fjölmörgum áhorfendum. Það var augljóst á leikmönnum SR að þeir komu vel stemmdir til leiks og fullir sjálfstrausts. SR sótti stíft og pressaði SA frá fyrstu mínútu enda leit fyrsta mark leiksins dagsins ljóss eftir 3 mín eftir gott skot frá Rúnari. Þeir Steinar Páll og Andy bættu svo við tveimur mörkum áður en fyrstu lotu lauk. SA hóf aðra lotu af miklum krafti á meðan SR lenti í hálfgerðum hrakningum með brottrekstra. Þessari pressu SA lauk svo með marki frá Birni á 10. mín. og staðan því 3 -1 fyrir SR. Við þetta mark vaknaði SR aftur til lífsins eftir þennan slæma kafla og Helgi Páll kom SR aftur í þriggja marka, þægilega forystu með góðu marki. SR tók aftur að pressa og spila vel, án þess þó að skora, en skömmu fyrir lok annarrar lotu var Zdenek kipptur niður í hraðaupphlaupi sem gaf SR vítaskot sem Mirek náði ekki að nýta. Staðan því 4 - 1 fyrir SR eftir tvær lotur. Í þriðju lotu komu svo SR-ingar tvíefldir til leiks og sýndu þá oft á tíðum glimrandi leik, enda létu mörkin ekki á sér standa. Fyrst skoraði Mirek, síðan Stefán eftir frábæra sendingu frá Mirek - hér unnu þeir Stefán og Mirek saman á einstakan hátt. Síðan skoraði Gauti gott mark eftir snilldarsendingu frá Andy. Sigmundur rak svo endahnútinn á góðan leik SR með marki 20 sek fyrir leikslok. Góður sigur, 8 - 1, í höfn.

SR sýndi í þessum leik svo ekki fór á milli mála að liðið getur leikið feiknavel. Allar stöður á vellinum eru vel skipaðar með þremur góðum línum. Spilið oft stórgott og hraðinn mikill. Í markinu stendur svo Birgir sem sýndi mjög traustan og góðan leik, og með þetta sjálfstraust og öryggi í markinu er hann liðinu ómetanlegur. Liðsandinn virðist auk þess vera frábær og samheldnin mikil, þar sem allir leikmenn léku fyrir liðið fyrst og fremst. Ekki skemmir það svo fyrir að geta notið krafta þeirra Ingvars og Ágústar sem komu aftur inn í liðið, en þeir eru við nám í Danmörku. Þeir virtust falla vel inn í liðið.

Lið SA er alltaf sterkt og vel skipað og sérstaklega er gaman að fylgjast með þessum sterku, ungu leikmönnum sem þeir hafa innan borðs sem stóðu sig mjög vel í þessum leik. Þeir standa fyllilega fyrir sínu. Enda þótt SR hafi tekið þennan leik nokkuð auðveldlega er úrslitakeppnin rétt að byrja og alveg ljóst að SA mun mæta grimmt til leiks á fimmtudagskvöldið er þeir taka á móti SR í öðrum leik úrslitakeppninnar, en sá leikur fer fram á Akureyri.

Mörk og stoðsendingar:

SR: Mirek 1/3, Andy 1/2, Stefán 1/2, Steinar Páll 1/1, Gauti 1/1, Helgi Páll 1/0, Rúnar 1/0, Sigmundur 1/0, Zdenek 0/4 og Birkir 0/1

SA: Björn 1/0, Lubomir 0/1.