Dags: 02.04.2006 19:37
Á mánudagskvöldið kl. 20:00 hefst Úrslitakeppnin í Íslandsmóti karla er SR tekur á móti SA í LAugardalnum. Næsti leikur er síðan fyrir norðan á fimmtudagskvöldið og svo aftur í Laugardalnum um næstuhelgi. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Hinn frábæri árangur SR í vetur í Deildakeppninni gildir því ekki þegar í úrslitin er komið. Bæði lið hafa styrkt sig fyrir Úrslitakeppnina en SR hefur fengið aftur í sínar raðir SR-ingana Ingvar Þór Jónsson, sem lék með danska liðinu Gladsaxe í vetur, og Ágúst Ásgeirsson, sem dvaldi við nám í Danmörku í vetur. SA hafa líka styrkt sig en Akureyringurinn Jón Gíslason kemur alla leið frá Kína, þar sem hann lék með Nordic Vikings, til að aðstoða SA. Bæði liðin eru því tilbúin í slaginn. Við hvetjum alla til að mæta í Laugardalinn en aðgangur er ókeypis.