Dags: 28.03.2006 08:59

Þessa dagana dvelst hér á landi kvennalið frá Winnipeg, Kanada, sem leikur undir merkjum Fálkanna er forðum gerðu garðinn frægan í Kanada. Liðið er skipað stelpum sem flestar eru á aldrinum 15-16 ára með nokkra reynslubolta innan um. Nú þegar hafa þær leikið tvo leiki við kvennalið Bjarnarins en þær kanadísku unnu fyrri leikinn 7-1 en þann síðari 5-0. Leikirnir voru mjög skemmtilegir á að horfa og sérstaklega gaman að fylgjast með hversu leikskilningur þeirra kanadísku var mikill og sömuleiðis agi - hver einasti leikmaður þekkti sína stöðu og sitt hlutverk. Þetta er eitthvað sem við sjáum alltof sjaldan í íslensku íshokkí. Hvað um það, í dag halda þær norður þar sem þær mæta kvennaliði SA og síðan enda þær ferðina á að mæta þar kvennalandsliðinu á laugardag.