Dags: 26.03.2006 13:43
SR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki er þeir sigruðu SA í gærkvöldi í Laugardalnum. Sigur SR var óvenjuglæsilegur og öruggur, 11-0, en á föstudagskvöldið höfðu þeir mætt mun meiri mótspyrnu frá SA í leik sem endaði 4-2. Þetta voru síðustu leikir SR-inga í Íslandsmótinu. Eftir jafna og spennandi keppni í allan vetur voru það strákarnir í SR sem reyndust bestir þegar uppi var staðið, enda liðið bætt jafnt og þétt við sig allt tímabilið. Við óskum strákunum til hamingju með titilinn.
Það skyggði þó á gleði strákanna að hinn sterki varnarmaður SR, Unnar Guðlaugsson, slasaðist illa á baki í leiknum. Unnar verður frá íshokkí af þeim sökum um nokkurn tíma. Þetta er blóðtaka fyrir liðið en hann mun mæta sterkur til leiks á næsta tímabili, enda harður af sér og jákvæður leikmaður.
Við vonumst til að geta birt myndir af sigurliði SR á næstunni.