Dags: 22.03.2006 22:12
Það má segja að lánið hafi ekki leikið við okkar menn í U18 landsliðinu í Litháen, en í gær þurftu þeir að lúta í lægra haldi fyrir Áströlum, 3-5, í jöfnum og spennandi leik. Með þessum sigri náðu Ástralir bronsinu, en England vann sig upp í fyrstu deild, en þeir unnu Litháa í síðasta leik mótsins. Hlutskipti Íslands er því að falla niður um eina deild. Ísland kemur þó varla til með að dvelja lengi þar því styrkur liðsins er mun meiri en árangur þeirra á þessu móti gefur til kynna. Hin ótrúlegu veikindi eru hrjáðu leikmenn liðsins meira eða minna allt mótið tók sinn toll, en þrátt fyrir það lögðu leikmenn sig alla fram og eru reynslunni ríkari. Ekki má svo gleyma lækni liðsins, Gauta Arnþórssyni, sem stóð í ströngu allan tímann og var liðinu mikill styrkur.