Dags: 20.03.2006 21:53

Einsog komið hefur fram hefur heppnin ekki leikið við U18 lið Íslands sem nú tekur þátt í HM í Litháen. Mikil veikindi og forföll hafa einkennt þátttöku okkar en vonandi birtir um síðir, en síðasti leikur þess er við Ástrali miðvikudaginn. Hér má sjá mark Íslands gegn Litháen í öðrum leik liðsins en Litháar tefla fram mjög sterku liði (af heimasíðu SA).