Fréttir

Total items: 1194

Björninn Íslandsmeistari í kvennaflokki

Dags: 19.03.2006 15:47


Í gærkvöldi tryggði Björninn sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki er þær mættu SA í hreinum úrslitaleik, en í vetur hefur keppnin verið ákaflega spennandi og jöfn milli þessara tveggja liða. Leikurinn fór fram í Egilshöllinni og vann Björninn 7 - 4, sem dugði þeim til að vinna titilinn. Með þessum sigri Bjarnarins var bundinn endir á 5 ára sigurgöngu SA í þessum flokki. Við óskum Bjarnarstúlkum til hamingju með sigurinn.