Dags: 12.03.2006 10:23
SR vann SA í síðasta leik liðanna fyrir Úrslitakeppnina í gærkvöldi 6 - 3 (2-1, 0-1, 4-1). Þrátt fyrir nokkuð öruggan sigur var leikurinn mjög jafn og spennandi, og það var ekki fyrr en í þriðju lotu sem skildi í sundur með liðunum og SR-ingar sigu örugglega fram úr. Glögglega kom í ljós í þessum leik að hið langa leikjahlé hjá meistaraflokki hafði sitt að segja því leikmenn, sérstaklega SR-ingar, voru lengi að komast í gang. Markvarslan er þó undanskilin því báðir markmenn voru mjög góðir. Staðan eftir fyrstu tvær loturnar var 2-2, en í þeirri þriðju mætti SR af fullu krafti inn í leikinn og kláruðu leikinn með fjórum mörkum, þ.á.m. eitt með vítaskoti. Þessi leikur gefur kannski einhver fyrirheit um það hvað bíður okkar í Úrslitakeppninni milli þessara liða, en bæði eiga þau þó væntanlega eftir að bæta við mönnum fyrir hana, þannig að keppnin verður spennandi. Úrslitakeppnin hefst hins vegar ekki fyrr en 3. apríl en þá mætast þessi lið í Laugardalnum. Með þessum sigri undirstrikaði SR hins vegar að þeir hafa verið með langbesta liðið í deildinni í vetur, með 51 stig eftir 18 leiki, eða 17 sigra og eitt tap. Í öðru sæti er svo SA með 29 stig. Við óskum SR-ingum til hamingju með glæsilega framistöðu í deildarkeppninni, sannkallaðir Deildarmeistarar.
Björninn og Narfi spiluðu fyrr um daginn og fór sá leikur 3 - 6 fyrir Narfa.
Mörk og stoðsendingar:
SR: Helgi Páll 1/1, Zdenek 1/1, Mirek 1/0, Stefán 1/0, Úlfar 1/0, Þórhallur 1/0, Gauti 0/1 og Sindri Már 0/1.
SA: Gunnar 1/0, Jan 1/0, Marian 1/0, Jón Ingi 0/1 og Lubomir 0/1