Dags: 11.03.2006 13:24
Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Skautafélagi Akureyrar í kvöld kl.20:00 !! Þetta verður án efa spennandi og skemmtilegur leikur þar sem SA hefur verið að styrkja lið sitt með góðum mönnum. Af sama skapi hefur SR verið að æfa vel og eru línurnar orðnar vel slípaðar og mun Ed Maggiacomo hafa úr 3 stekum línum að velja á móti SA. Komið niður í Skautahöllina í Laugardal og hvetjið ykkar menn !!