Fréttir

Total items: 1194

Mikilvægur sigur hjá 3. flokki

Dags: 07.03.2006 22:51


Í gærkvöldi léku SR-ingar við Björninn í Íslandsmóti 3. flokks en þessi tvö lið hafa verið mjög jöfn í allan vetur. Þannig hafa þau unnið sitthvorn leikinn og gert eitt jafntefli í innbyrðisviðureignum sínum í vetur. Leikurinn í gær var hin besta skemmtun frá upphafi til enda. Björninn byrjaði af miklum krafti og komst yfir 0-1, en í kjölfarið kom góður kafli hjá SR sem komust í 3-1 fyrir leikhlé. Björninn tók síðan mikinn fjörkipp og skoraði næstu 4 mörk og staðan því 3-5 Björninum í vil þegar 15 mín voru eftir af leiknum. Þrátt fyrir slæma stöðu gáfust SR-ingar ekki upp, heldur tvíefldust við mótlætið. Smátt og smátt tóku þeir leikinn í sínar hendur og náðu að jafna og komast svo yfir þegar 6 mín voru eftir. Þeir gulltryggðu svo sigurinn, 7-5, með öðru marki skömmu fyrir leikslok.

SR átti mjög góðan leik gegn sterku liði Bjarnarins. Allir leikmenn liðsins lögðu sig fram, vörnin góð og sóknin beitt. Sérstaklega var línan þeirra Péturs, Ragnars og Egils sterk, en Björninn átti í mestu vandræðum með að hemja hraðann í þeirri línu. Þar fór fremstur í flokki Egill með 4 mörk og sannkallaðan stórleik. Þá átti Styrmir sterkan leik og skoraði m.a. tvö mikilvæg mörk, þ.e. jöfnunarmarkið í stöðunni 4-5, og síðan markið er kom SR yfir, 6-5. Annars á allt liðið hrós skilið fyrir góðan leik og mikinn viljastyrk. Það skyggði þó aðeins á ánægjuna að sóknarmaðurinn skæði hjá SR, Kristján, slasaðist illa á hendi. Hann verður vonandi fljótur að jafna sig, enda harður af sér.

Mörk og stoðsendingar

SR: Egill 4/0, Styrmir 2/1, Gunnar 1/0, Ragnar 0/3, Pétur 0/2, Andri 0/1 og Tómas 0/1.

Björninn: Einar 1/2, Matthías 1/1, Sævar 1/1, Andri 1/0, Aron 0/1 og Gunnar 0/1.