Fréttir

Total items: 1194

Mfl SR sigraði Esjuna

Dags: 04.03.2006 21:45


toppurinn_a_tilverunni.jpg

Nokkrir eiturhressir SR-ingar ákváðu að stíga á fjöll og varð Esjan fyrir valinu. Alls voru SR-ingarnir 7 sem tóku þetta verkefni að sér, Helgi Páll fyrirliði, Stefán aðstoðar fyrirliði, Svavar, Steinar Páll, Ingi Þór og Birkir "Hulk" restin af Meistaraflokknum voru uppteknir við ýmis verkefni. Í upphafi ferðar leit Esjan vel út... ekkert of há og brattinn ekkert tiltökumál. Um miðbik fjallshlíðarinnar fór bil milli manna að stækka og þeir (sá) stærri fóru hægar en þeir ungu og fersku. Þegar stutt var eftir í toppinn treysti einn fjallagarpurinn sér ekki til þess að klára uppá topp og varð því að sitja í rólegheitum við fjallstindinn á meðan hinir 6 kláruðu dæmið, fengu sér hressingar og kvittuðu nafnið sitt í hina víðfrægu Esjubók sem staðsett er á toppnum. Ferðin niður gekk áfallalaust fyrir sig og skelltu menn sér í sund eftir þessi átök. Verður þessi sigur á Esjunni bætt við í afrekalista SR þetta tímabilið.

Myndin hér að ofan er af þeim görpum sem komust á toppinn einsog sést þá var veður með allra besta mótið og hreystið geislaði af mönnum.