Dags: 26.02.2006 22:20

Í dag urðu Svíar Ólympíumeistarar er þeir lögðu Finna að velli, 3-2, í æsispennandi og jöfnum leik. Finnar náðu fyrst forystunni og héldu henni út fyrstu lotu. Í annarri lotu náðu Svíar að jafna og komust svo yfir 2-1, en Finnar jöfnuðu fljótt leikinn og staðan því 2-2 eftir tvær lotur. Í þriðju lotu komust svo Svíar yfir með stórskostlegu marki frá Nicklas Lidström, sannkallað þrumuskot rétt innan við bláu línuna. Þetta reyndist svo sigurmarkið í leiknum.
Segja má að Svíar hafi farið hægt af stað í keppninni en þó ávallt gert það sem til þurfti. Þegar á reyndi var það hin mikla breidd í liði Svía sem gerði gæfumuninn, en innan liðsins eru einfaldlega svo margir, sterkir einstaklingar. Finnar geta þó sannarlega verið ánægðir með sinn árangur, lögðu m.a. Bandaríkjamenn og Rússa að velli til að komast í úrslitaleikinn, en þetta var þeirra eini tapleikur í allri keppninni.