Dags: 25.02.2006 01:16

Þá er það orðið ljóst að Svíar og Finnar munu keppa um gullverðlaunin á Vetrarólympíuleikunum en í gærkvöldi vann Svíþjóð Tékka 7-3 í bráðfjörugum leik, og Finnar unnu síðan Rússa 4-0. Finnar hafa því unnið alla 7 leiki sína í keppninni, aðeins fengið á sig 5 mörk og þar af haldið markinu hreinu í fjórum leikjum! Að mörgu leyti er þetta draumaúrslitaleikur því innbyrðisleikir þessara þjóða eru ávallt fylltir spennu og dramatík, enda mikill rígur á milli Finna og Svía í íshokkí. Það verður gaman að fylgjast með hvernig stjörnurnar í liði Svía, Forsberg og Sundin, standa sig á móti stjörnum Finna, með Saku Koivu fremstan í flokki. Þetta verður í fyrsta skipti sem Finnar leika til úrslita á Ólympíuleikunum en Svíar urðu Ólympíumeistarar árið 1994.