Fréttir

Total items: 1194

Stórveldið slegið út!

Dags: 22.02.2006 23:18


russland_sigur_toriono2006.jpg

Í gær réðst hvaða fjögur lið leika í undanúrslitunum á Vetrarólympíuleikunum, eftir spennandi og jafna leiki er sáu m.a. Kanada slegið út úr keppninni. Í fyrsta leiknum slógu Svíar út Sviss nokkuð örugglega, 6-2. Í öðrum leiknum mættu Finnar síðan Bandaríkjunum og enn á ný sýndu Finnar ótrúlega seiglu er þeir sigruðu 4-3 í hörkuleik. Síðan kom að stórleiknum er Rússar, með sitt unga lið, mættu reynslumiklu liði Kanada. Leikurinn var æsispennandi og skemmtilegur, í járnum allt fram í þriðju lotu er hinn kornungi Alexander Ovechkin kom Rússum yfir með sínu 5. marki í keppninni. Rússar innsigluðu svo 2-0 sigur skömmu fyrir leikslok. Þetta tap hlýtur að valda Kanadamönnum miklu vonbrigðum sem hafa verið nær ósigrandi á stórmótum frá því á síðustu Ólympíuleikum. Um leið er eftirtektarverður uppgangurinn hjá Rússunum og þeir fjölmörgu, ungu leikmenn sem eru að koma fram á sjónarsviðið hjá þeim, einsog Ovechkin, Malkin og Kovalchuk. Í síðasta leiknum mættust svo nágrannarnir Tékkar og Slóvakar, sem unnið hafa alla sína leiki í keppninni. Svo fór að hið reynslumikla lið Tékka lagði Slóvakana, 3-1. Kannski ekki sanngjarnt gagnvart Slóvökum sem hafa leikið svo skemmtilega en svona getur þetta verið.

Myndin sýnir Rússa fagna leikslokum gegn Kanada