Dags: 18.02.2006 11:24

Þau undur og stórmerki gerðust í gær á Vetrarólympíuleikunum að kvennalið Svíþjóðar vann Bandaríkin í undanúrslitum, í vítaskotskeppni eftir hefðbundinn leiktíma. Fram til þessa hafa Kanada og BNA aldrei tapað fyrir öðrum þjóða á stórmótum, nema gegn hvorri annarri og því er sigur Svía sögulegur svo ekki sé meira sagt. Þeir sem fylgdust með útsendingu RUV á þessum leik í gær hafa eflaust rekið augun í kunnuglegt andlit á bekk Svía , en þar var enginn annar en fyrrum þjálfari SR-inga, Peter Bolin, sem þjálfaði hjá okkur í tvö ár. Peter er nú aðstoðarþjálfari sænska kvennalandsliðsins sem segir allt um það hversu virtur þjálfari hann er, enda naut íslenskt íshokkí góðs af veru hans hér. Við óskum honum til hamingju með þennan frábæra sigur.
Fram hafa komið þær gagnrýnisraddir að íshokkí kvenna eigi ekki heima á Vetrarólympíuleikunum þar sem munur á milli liða sé svo mikill (kunnugleg umræða!). Forseti Alþjóðaíshokkísambandsins, Rene Fasel, hefur þó beðið gagnrýnendur að sýna þolinmæði og benti m.a. á að það hefði tekið sænska karlalandsliðið 64 ár að vinna Kanada á Vetrarólympíuleikunum, á meðan það tók þær sænsku þrjú mót að vinna topplið. Kvennaíshokkí er fyrir löngu komið til að vera - nú vantar bara kvennalið hjá SR!