Dags: 14.02.2006 12:49
Þá er íshokkíið komið á fullt skrið á Vetrarólympíuleikunum í Tórínó á Ítalíu en nú þegar hafa verið leiknir nokkrir leikir í kvennaflokki. Þar vekur einna helst athygli miklir yfirburðir kanadíska liðsins sem hefur m.a. unnið Ítalíu 16-0 og Rússland 12-0. Í dag leika þær við Svíþjóð, sem telja má 3ja besta kvennaliðið á eftir Kanada og BNA, en þessi leikur verður sýndur í dag á RUV og hefst kl. 14:30, einsog fram kemur á heimasíðu ÍHÍ. Seinna í vikunni hefjast svo karlaleikirnir.