Fréttir

Total items: 1194

Öruggur sigur hjá SR

Dags: 09.02.2006 23:36


Í gærkvöldi mættu SR-ingar liði Bjarnarins í Íslandsmóti karla en þessi leikur fór fram í Laugardalnum að viðstöddum fjölmörgum áhorfendum. Ekki verður þessi leikur lengi í minnum hafður þar sem SR lék lengst af langt undir getu gegn áköfum Bjarnarmönnum. SR byrjaði þó með krafti því staðan var 2-0 eftir aðeins tvær mínútur. Fyrst skoraði Stefán gott mark og strax í kjölfarið kom glæsilegt mark með bakhandarskoti hjá Gauta. Nú héldu víst flestir að þetta yrði auðveldur eftirleikur en Björninn náði þó að jafna 2-2. Björninn tvíefldist við mörkin og pressaði stíft, á meðan SR-ingar voru óvenju ráðvilltir í sínum leik, sérstaklega varnarlega. Björninn gekk á lagið og þurfti Birgir oft að bjarga málum. Á þessum kafla komu SR-ingar ekki frá sér einföldum sendingum og virtust frekar áhugalausir. En það átti eftrir að breytast er Mirek hrökk í gírinn og breytti stöðunni í 4-2 áður en fyrstu lotu lauk. Mirek hélt svo uppteknum hætti í annarri lotu og bætti einu marki við, og síðan öðrum tveimur í þriðju lotu. Zdenek skoraði svo síðasta mark SR og kom þeim í 8-2. Björninn skoraði svo síðasta mark leiksins sem endaði þá 8-3.

Frammistaða SR í þessum leik var köflótt. Þeir gerðu þó það sem til þurfti og sýndu þannig styrk sinn. Ekki verður hjá því komist að minnast á frammistöðu Mireks því hann átti sannkallaðan stórleik, með 5 mörk , hverju öðru fallegra. Þá var Zdenek mjög góður og átti margar gullfallegar sendingar. Svo verður að nefna Birgi sem var mjög traustur í markinu, eftir smá upphitun. Lið Bjarnarins barðist vel í fyrstu lotu en smátt og smátt fjaraði undan leik þeirra. Því miður er að finna innan liðsins örfáa leikmenn sem síendurtekið gera sig seka um óíþróttamannslega  hegðun, einsog t.d. leikmaður nr 77, á meðan aðrir, einsog leikmaður nr. 5, leggja sig fram um að spila íshokkí.

Leikinn dæmdi Snorri Sigurðsson sem dæmt hefur mjög vel í vetur en þetta var hins vegar ekki hans dagur. Það veldur vissum vonbrigðum að hálfgert skotleyfi virðist vera á Zdenek, en í þessum leik fékk þessi leikmaður, einsog svo oft áður í vetur, engan frið fyrir allskonar brotum sem mörg hver fóru fram hjá dómaranum. Það er til efs ef nokkur leikmaður í Íslandsmótinu hafi t.d. fengið eins oft kylfuna í andlitið einsog Zdenek, sem er einn allra skemmtilegasti íshokkíleikmaður sem hér hefur sést. Þessu verður að linna. 

Mörk og stoðsendingar:

SR: Mirek 5/1, Stefán 1/3, Zdenek 1/2, Gauti 1/0, Andy 0/1, Rúnar 0/1, Sindri 0/1.

Björninn: Kolbeinn 1/1, Brynjar 1/0, Guðmundur 1/0, Hjörtur 0/1