Fréttir

Total items: 1194

Yngsti SR-ingurinn!

Dags: 11.02.2006 18:00


johann.jpg

Það hafa margir litlir guttar mætt í Skautaskólann hjá Helga Páli en þeir eru ekki margir sem eru jafn ungir að árum og Jóhann, tveggja og hálfs árs. Jóhann hefur mætt vel og sýnt góðar framfarir enda á hann ekki langt að sækja skautaáhugann því hann er sonur Kristjáns "Diddó" Óskarssonar, sem lék lengi með meistaraflokki SR, og einn dyggasti stuðningsmaður félagsins. Auk þess leikur bróðir Jóhanns, Ómar Freyr, með 5. flokki SR. Búast má við því að Jóhann verði gjaldgengur í meistaraflokk SR svona um 2021 til 2023!