Fréttir

Total items: 1194

Sterk lið á Vetrarólympíuleikunum í Tórínó

Dags: 07.02.2006 17:57


Um næstu helgi hefjast Vetrarólympíuleikarnir í Tórínó á Ítalíu en þangað senda sterkustu íshokkíþjóðirnar lið í keppnina, þ.e. Kanada, BNA, Svíþjóð, Rússland, Finnland, Slóvakía, Tékkland, Sviss, Þýskaland, Kasakstan, Lettland og Ítalía. Það verður ekki annað sagt en að þessar þjóðir taki þessa keppni alvarlega því allar senda þær sín sterkustu lið, þar sem fremstir í flokki eru helstu stjörnur NHL. Þannig er lið Kanada og BNA eingöngu skipað NHL leikmönnum, og í liði Tékka er aðeins einn leikmaður er ekkileikur í NHL. Hjá Svíum eru 19 leikmenn af 23 í NHL og 18 leikmenn Finna. Þarna verða t.d. Jaromir Jagr og Dominik Hasek frá Tékklandi, Peter Forsberg og Daniel Alfredsson frá Svíþjóð, Joe Sakic og Martin Brodeur frá Kanada, og síðan Mike Modano og Chris Chelios frá BNA. Enda þótt valinn maður sé í hverju rúmi urðu deilur um val einstakra leikmanna, sérstaklega í liði Kanadamanna. Það vakti t.d. athygli að nýjasta stjarnan þeirra, ungstirnið og undrabarnið Sidney Crosby, sem hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili í NHL, skyldi ekki vera valinn. Margir líta reyndar þannig á að í liði Kanada, sem sjálfur Gretzky valdi, séu leikmenn sem sé að verðlauna fyrir langan og giftusaman feril í NHL. Þegar uppi er staðið skiptir það kannski ekki máli þar sem Kanada gæti í raun teflt fram mörgum heimsklassaliðum, slík er breiddin. Nú er bara að vona að RUV sýni nú eitthvað frá íshokkíinu, svona inni á milli skíðastökksins og skotfimiskíðagöngunnar. Annars hvetjum við áhugafólk um íshokkí að hafa bara samband við RUV og minna þá á íshokkíið. Liðin á Vetrarólympíuleikunum má sjá hér.