Fréttir

Total items: 1194

Bautamót 4. flokks á Akureyri

Dags: 03.02.2006 17:36


Um helgina fer fram á Akureyri hið árlega Bautamót 4. flokks en SA heldur þetta mót sem er hluti af Íslandsmótinu í þessum aldursflokki. Fyrsti leikurinn fer fram kl. 8:00 á laugardagsmorgni en það er leikur milli SR og SA í 4A. Mótinu lýkur svo á hádegi á sunnudag með leik SR og Bjarnarins í 4B, en öll félögin senda bæði A og B-lið í mótið. Við óskum leikmönnum góðs gengis um helgina. Dagskrá mótsins má nálgast hér.